Tuesday, November 18, 2014

Vikan 12 - 19 nóv

Ég er ekki búin með stóra smelluverkefnið né logoið en mig langað til að sýna ykkur skyssu af því sem ég er búin að vera að gera, sem ég skal sýna ykkur seinna þegar ég er búin að setja þau saman. En þetta er það sem síðasta vika er búin að fara í hjá mér.

Stóra smelluverkefnið.
Ég er búin að ákveða að ég ætla að gera snaga með plexiglers plötu að aftan og ég á ennþá eftir að finna út hvernig ég ætla að snagana sjálfa. Eins og er, er hugmyndin að platan líti einhvern veginn svona út, en hver veit nema það breytist. 

Hugmyndin er semsagt að hafa hauskúpurnar fyrir ofan snagana, sem smella svo í að einhverjum hætti! Ég finn útúr því í tímanum á morgun.

Logo
Ég er búin að hanna logoið, en hef ekki ennþá komist í það að framkvæma. Ég ákvað enn og aftur að hafa það einfalt. Enda eru einfaldir hlutir oftast rosa fallegir! 

Þetta eru skyssurnar sem ég er búin að gera og ég efast ekki um að þær breytist eitthvað. En það kemur bara í ljós. Svo hendi ég inn bloggi þegar þetta er tilbúið til þess að sýna ykkur útkomuna!

Litla Smelluverkefnið

Litla smelluverkefnið snérist um það, eins og nafnið gefur ef til vill til kynna, að hafa tvo hluti  sem skornir voru út í plexigler, smellta saman. Þeir máttu vera hangandi eða standandi, bara svo lengi sem þeir pössuðu saman. Ég ákvað að gera drekaflugu, þar sem mér hefur alltaf fundist þær rosa fallegar og tengi þær við ákveðna hluti. 

Ég teiknaði hana upp í Inkscape fríhendis sem var í rauninni ekkert svo erfitt, enda einföld og sæt fluga. Hún er sirka 10 cm á lengd. Til þess að smella henni saman ákvað ég að hafa pinna standandi upp úr henni svo ég gæti tillt vængjunum ofan á hana.


Þrátt fyrir að aftur, vegna tæknierfiðleika, geta ekki sett mynd af skyssunni þá lítur hún svona út ef hún er tekin í sundur. Þegar hún er sett saman þá lítur hún svona út, einföld og skemmtileg.


Krukkan

Við áttum að gera krukkuverkefni. Semsagt að gera límmiða sem myndi ná utan um krukku, sem hægt var að setja kerti í (lítið ljósker). Við fengum flestar krukku í skólanum en þar sem mín krukka "týndist", þá eru málin ekki alveg rétt fyrir krukkuna sem ég setti límmiðann á. 

Allavegana, ég ákvað að gera límmiða sem voru með dropum. Vegna smá tæknivandræða get ég ekki sýnt ykkur upphaflegu myndina en ég skal setja hana inn strax og ég kemst í hana aftur. Krukkan mín er semsagt með mynd af dropum sem líta út fyrir að þeir séu að detta niður. Það versta við það var er að línurnar fyrir ofan dropana voru aðeins of þunnar, hefði átt að gera færri dropa og þykkari línur. En hún kom svona út.  



Eins og þið sjáið þá er aðeins erfiðara að koma miðanum á en maður heldur, þarf greinilega að æfa mig aðeins í því áður en ég geri svona aftur. En þrátt fyrir það er hún rosa falleg með slökkt ljós og kerti í. Það kemur frá henni rosa falleg og kósý birta!